Enginn skólaakstur á morgun

Á morgun föstudaginn 25. febrúar er spáin enn á ný ekki hagstæð. Þar sem klaki er enn á vegum víða og appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi fyrir hádegi, munu skólabílar ekki vera á ferðinni á morgun. Nemendur í skólaakstri verða því ekki sóttir á í fyrramálið né keyrðir heim um hádegi.