Enn frestum við skíðaferð

Á morgun, fimmtudaginn 4. mars, var fyrirhugað að fara í skíðaferð. Við höfum ákveðið í ljósi þess að lítið útlit er fyrir skíðafæri á morgun sem og þess að mögulega stefnir í eldgos á Reykjanesinu, að fresta ferðinni um óákveðinn tíma. Við reynum síðar í vetur ef hægt verður.