Elsta-stig klukkan 10:00-11:00
Yngsta-stig klukkan 11:00-12:00
Mið-stig klukkan 12:00-13:00
Foreldrar klukkan 17:00-18:00
Foreldrafélag Hvolsskóla og sveitarfélagið í tengslum við hlutverk sitt sem heilsueflandi sveitarfélag, bjóða upp á fyrirlestur í Hvolsskóla 8. nóvember næst komandi.
Fyrirlesturinn verður á skólatíma fyrir nemendur. Sérstakur fyrirlestur verður fyrir foreldra í matsal Hvolsskóla kl. 17:00 sama dag. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.
Þar sem nemendur fá hliðstæðan fyrirlestur sama dag er mikilvægt fyrir foreldra að mæta og geta þannig tekið sinn þátt í því sem farið hefur fram með börnunum sama dag.
Markmið fyrirlestursins byggir á jákvæðri nálgun í samskiptum í lífi og starfi. Þar sem fyrirlesarinn leggur áherslu á eftirfarandi þætti;
- Að keyra upp orkuna í hópnum
- Kynnast ánægjuaukandi hugmyndafræði og læra áhrifaríkar aðferðir sem geta stóreflt hvern einstakling fyrir sig og alla liðsheildina til muna.
- Kveikja upp innri áhugahvöt þátttakenda til að taka meiri ábyrgð á eigin líðan.
- Byggja upp jákvæð viðhorf gagnvart sameiginlegum markmiðum hópsins.
- Að allir gangi út með þekkingu og aðferðir til að örva tauga- og boðefnakerfi líkamans þannig að útkoman verði topp tilfinningalegt ástand.
- Hlægja og hafa gaman saman.
Fyrirlesari eru Bjartur Guðmundsson. Fyrirlesturinn er 60 mínútur að lengd og einnkennist af orku, húmor og virkri þátttöku þar sem hópurinn fær að upplifa aðferðirnar á eigin skinni.