Útskurður í vali

Í nokkur ár hefur verið boðið upp á útskurð í vali á elsta stigi í Hvolsskóla. Það er hann Hjálmar Ólafsson trésmiður, HÓ handverk, sem hefur verið með þetta val fyrir okkur. Munirnir sem krakkarnir eru að gera eru einstaklega fallegir eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.