Óveður

Þar sem ansi hvasst er í Hvolsvelli í dag mælumst við til þess að foreldrar barna í þorpinu sæki þau sem eiga að fara heim núna kl. 15. Barn af yngsta stigi sendum við ekki af stað nema forráðamaður komi og nái í það. Biðjum ykkur að ganga inn um hurð hjá ritara.

Einhver lítilsháttar seinkun gæti orðið á heimferðum skólabíla en veðrið á að ganga mikið niður milli 15:30 og 16 ef marka má spár.