Skíðaferð í Bláfjöll
Fyrirhugað er að fara með nemendur í 5. – 7. bekk í skíðaferð í Bláfjöll þriðjudaginn 25.febrúar. Nemendur geta leigt sér skíðabúnað á staðnum. Þeir nemendur sem ætla ekki í þessa ferð mæta í skólann í kennslu. Foreldrar eru velkomnir með og biðjum við þá að tilkynna þátttöku til ritara.
Lagt verður af stað um kl. 8:30 og komið til baka um kl. 17:00. Mikilvægt að þið fylgist vel með á heimasíðu skólans sem og fésbókarsíðu hans, við látum vita á þar ef ferðin fellur niður.
Skráning fer fram hjá ritara og um leið þarf að borga 1.300 krónur, dagskort í skíðalyfturnar.
Þeir nemendur sem ætla að leigja búnað þurfa að hafa með sér 4.650 krónur og ganga frá leigu á staðnum (Bláfjöllum). Einnig má taka það fram að þeir nemendur sem týna sínu lyftukorti þurfa að borga auka 1.000 krónur. Minnum á hjálma notkun (einungis skíðahjálmar).
Krakkarnir þurfa að nesta sig út fyrir daginn (Munið að við erum hnetulaus skóli).