Fyrirlestur í boði foreldrafélags. Fjallað verður um snjalltækjanotkun barna á leik- og grunnskólaaldri, hvernig foreldrar geta aðstoðað börn sín við að fóta sig í stafrænum heimi og gætt þess að jafnvægi sé á milli notkunarinnar og annarra daglegra athafna. Bent verður jafnframt á hagnýtt efni til stuðnings bæði notkuninni og námi þeirra. Leiðbeinandi er Bergþóra Þórhallssdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni á Menntasviði Kópavogsbæjar. Aðgangur ókeypis í boði foreldrafélaga Hvolsskóla, Grunnskólans á Hellu og Laugalandsskóla 27.febrúar kl. 17:00 í Safnaðarheimilinu, Dynskálum 8, Hellu. Fyrirlesturinn verður einnig í fjarfundi á Teams. Skráning er nauðsynleg fyrir fjarfundinn hér https://forms.microsoft.com/e/109FuP0kwq
Powered by Events Manager