Fyrirlestur í boði foreldrafélags.
Fjallað verður um snjalltækjanotkun barna á leik- og grunnskólaaldri, hvernig foreldrar geta aðstoðað börn sín við að fóta sig í stafrænum heimi og gætt þess að jafnvægi sé á milli notkunarinnar og annarra daglegra athafna. Bent verður jafnframt á hagnýtt efni til stuðnings bæði notkuninni og námi þeirra.
Leiðbeinandi er Bergþóra Þórhallssdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni á Menntasviði Kópavogsbæjar.
Aðgangur ókeypis í boði foreldrafélaga Hvolsskóla, Grunnskólans á Hellu og Laugalandsskóla
27.febrúar kl. 17:00 í Safnaðarheimilinu, Dynskálum 8, Hellu.
Fyrirlesturinn verður einnig í fjarfundi á Teams.
Skráning er nauðsynleg fyrir fjarfundinn hér
https://forms.microsoft.com/e/109FuP0kwq