Nú fer að líða að árlegum fjallgöngudegi í Hvolsskóla. Farið verður með stuttum fyrirvara og gengið á eftirfarandi fjöll:
- 1. bekkur: Stóra-Dímon
- 2.-4. bekkur: Lambafell
- 5.-7. bekkur: Fagrafell
- 8.-10. bekkur: Drangshlíðartindur
Krakkarnir þurfa að koma vel klæddir til göngu. Gott er að hafa með sér vatnsbrúsa.
Fyrsti mögulegi göngudagurinn er næstkomandi miðvikudagur, þann 4. september.