Opið hús á elsta stigi

Hvolsskóli er Grænfánaskóli og eru nemendur á elsta stigi að vinna verkefni sem tengjast umhverfisstefnu skólans. Á þriggja ára fresti er haldið fræðslutorg á elsta stigi og er yfirheitið að þessu sinni umhverfismál. Aðalmarkmið fræðslutorgsins er að fræða nærsamfélagið, að íbúar sveitarfélagsins verði meðvitaðir um hvernig hægt er að velja umhverfisvænni lífstíl.

Um hópaverkefni er að ræða og er verkefnið unnið þvert á fög í náttúrufræði, íslensku og ensku. Nemendur hafa m.a. tekið viðtöl, lagt fyrir kannanir og unnið ýmis skapandi verkefni. Kynningarbásarnir verða 14 talsins og því mikill fróðleikur í boði.

Verið velkomin á opið hús á elsta stigi Hvolsskóla, þriðjudaginn 4. febrúar frá kl. 12:30-14:00.