Jafnréttisvikan í Hvolsskóla

Jafnréttisvika var haldin hátíðleg hér í Hvolsskóla 18.-22. nóvember. Nemendafélagið skreytti skólann í öllum regnbogans litum og var fjölbreytileikinn í heiðri hafður og ýmsar umræður í þeim anda inni í bekkjum.

Bókasafnið bauð upp á mannréttindafræðslu frá Amnesty fyrir 4., 7. og 10. bekk. Samtökin 78 komu með fræðslu inn í 3., 6. og 9. bekk og einnig fékk starfsfólk skólans fyrirlestur frá þeim.

Nemendur og starfsfólk skólans tóku þátt í góðgerðarverkefni og perluðu armbönd til stuðnings Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Perlað var í tvo klukkutíma og var afraksturinn 480 armbönd sem er vel af sér vikið. Til aðstoðar voru konur úr Ladies Circle 18 og starfsfólk PwC á Hvolsvelli. Þökkum við þeim kærlega fyrir hjálpina.

Fleiri myndir eru í myndaalbúmi.