Árleg mæling á Sólheimajökli

Mælingar 7. bekkjar Hvolsskóla á hopi Sólheimajökuls

Fimmtudaginn 26. september fór 7. bekkur Hvolsskóla í árlega ferð að Sólheimajökli að mæla hop jökulsins. Farið var frá Hvolsskóla klukkan 8:30 að morgni og komið að Sólheimajökli klukkutíma seinna. Byrjað var að fá sér ávexti og síðan gengið að stóru skilti þar sem fyrsti GPS punkturinn er og tekin hópmynd. Síðan var gengið að næsta GPS punkti, sem var rétt hjá lóninu. Mættir voru 2 menn frá Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli með bát. Björgunarsveitamennirnir sigldu með 4-5 nemendur í einu að jökulsporðinum og tóku GPS punkt. Í ljós kom að vegalengd að jökli er 700 metrar en var 711 metrar í fyrra, sem þýðir að jökullinn hefur skriðið fram um 11 metra. Þessar mælingar byrjuðu árið 2010 en þá voru 318 metrar að jöklinum. Hann hefur því minnkað um 382 metra frá upphafi mælinga. Í fyrra, árið 2023 ýttist jökullinn fram um 52 metra í fyrsta skipti og er þetta því í annað skiptið síðan mælingar hófust sem hann skríður fram.

Frétt unnin af nemundum 7. bekk Hvolsskóla.