Sólheimajökull

Fimmtudaginn 22. september 2022 fórum við, nemendur í 7. bekk, að mæla Sólheimajökul. Við vorum einstaklega heppin með veður, sól og blankalogn allan tímann. Björgunarsveitin Dagrenning kom og aðstoðaði okkur við mælingar. Jökullinn hefur hopað um 37 metra frá því haustið 2021 og var þetta í 13. skipti sem það var mælt. Jökullinn hefur hopað um 445 metra síðan árið 2010 þegar mælingar hófust. Mælt var með GPS tæki og veiðistöng fyrir dýptarmælingu. Lónið er um 54 metrar djúpt eins og staðan er núna.

Jón Stefánson byrjaði þetta verkefni árið 2010 og settum við niður blóm til minningar um hann.

Í lok mælingar fengum við að fara í bátsferð að skoða lónið betur. Blái liturinn, askan og stærð lónsins komu okkur á óvart.