Ferð að Sólheimajökli með forsetum

Í dag fylgdu 8 nemendur úr 7.-10. bekk, forseta Þýskalands, hr. Frank-Walter Steinmeier og forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni, að Sólheimajökli. Krakkarnir byrjuðu á því í morgun að hitta forsetana og fylgdarlið í LAVA og kynna stuttlega fyrir þeim verkefnið sem hefur verið í gangi í 9 ár, en það eins og flestir þekkja snýst um að mæla hop Sólheimajökuls. Tíunda mælingin verður gerð nú í haust. Mælingin haustið 2018 sýndi að jökullinn hefði hopað um 379 metra síðan haustið 2010. Krakkarnir röltu með hópnum, sögðu frá og svöruðu spurningum, bæði forsetanna og fjölmiðlanna. Það er mikill heiður fyrir skólann að fá að kynna þetta verkefni fyrir þessum hópi og leystu börnin þetta vel af hendi. Þeim til fylgdar voru Jón Stefánsson verkefnastjóri Grænfánans sem leitt hefur þetta verkefni og Birna Sigurðardóttir skólastjóri.
Meðfylgjandi mynd tók Elín Rósa Sigurðardóttir.