Stóra upplestrarkeppnin

Í dag fór fram Stóra upplestrarkeppnin á okkar svæði og voru það Laugalandsskóli, Grunnskólinn á Hellu, Hvolsskóli, Grunnskólinn í Vestmannaeyjum, Víkurskóli og Kirkjubæjarskóli sem áttu þar fulltrúa. Keppnin fór fram hér í Hvolsskóla. Lesarar stóðu sig allir með stakri prýði og átti dómnenfndin erfitt með að vinna sína vinnu. Dómnefndina skipuðu þau Jón Hjartarson frá Röddum en hann var jafnframt formaður dómnefndar, Elínborg Siguðardóttir og Katrín Þorbjörg Andrésdóttir sem báðar eru sérkennarar og störfuðu sem kennsluráðgjafar við Skólaskrifstofu Suðurlands.
Efst stóð Lilja Dögg Ágústsdóttir úr Hvolsskóla. Í öðru sæti var Gabríel Ari Davíðsson úr Grunnskóla Vestmannaeyja og í því þriðja var Sunna Hlín Borgþórsdóttir úr Laugalandsskóla í því þriðja. Innilega til hamingju öllsömul.

Á meðfylgjandi mynd má sjá sigurvegarana ásamt kennurum sínum.